Allt sem þú þarft að vita um ágreining varðandi færslur.

Ef upp kemur vandamál með lokna kortafærslu sem ekki tekst að leysa með beinu sambandi við verslunina, geturðu skráð ágreining vegna færslu hjá Mollie.


Það sem þú þarft að vita fyrirfram

Það fer eftir því hversu flókið málið þitt er, en ágreiningsferlið getur tekið allt að 12 vikur áður en endanleg niðurstaða fæst. Við getum ekki flýtt fyrir ákvörðun í málinu þínu, þar sem ágreiningsferlið er reglubundið og háð lögboðnum viðbragðstímum milli aðila, sem við verðum að fylgja.

Hvernig virkar ágreiningsferlið?

Til að hefja ágreining fyllirðu út eyðublað og sendir kröfuna til Mollie ásamt þeim gögnum sem beðið er um. Því fleiri upplýsingar og gögn sem þú veitir til að styðja kröfuna þína, því meiri líkur eru á að ágreiningsmálið verði leyst þér í hag.

Skref 1: Grunnmat

Þegar þú hefur sent inn ágreininginn þinn verður hann skoðaður og metinn af teyminu okkar til að ákvarða hvort færa eigi málið áfram.

Mögulegar niðurstöður þessa grunnmats:

  • Hefja ágreiningsferlið - ef við teljum að ágreiningurinn þinn hafi möguleika á árangri út frá veittum upplýsingum, færum við málið áfram.
  • Hafna ágreiningsmálinu - ef við teljum að ágreiningurinn þinn muni ekki bera árangur út frá veittum upplýsingum, eða færslan er ekki gjaldgeng til ágreinings, höfnum við ágreiningnum og þú færð ekki endurgreitt.
  • Vantar frekari upplýsingar - ef við teljum að færslan sé gjaldgeng til ágreinings, en okkur vantar nauðsynlegar upplýsingar eða gögn, biðjum við um það áður en við getum haldið málinu áfram.

Skref 2: Yfirlestur hjá verslun

Ef við hefjum ágreiningsferlið er krafan send til verslunarinnar (í þessu tilfelli seljanda vöru eða þjónustu sem þú keyptir). Þegar þetta hefur verið gert, látum við þig fá fyrstu uppfærslu innan 72 klukkustunda og eftir það fær verslunin 45 daga til að svara.

Mögulegar niðurstöður yfirlesturs verslunar:

  • Verslunin samþykkir eða svarar ekki - ágreiningurinn þinn tekst og þú færð endurgreitt.
  • Verslunin er ósammála - málið þitt helst opið og önnur matsskoðun fer fram.

Skref 3: Önnur matsskoðun

Ef verslunin er ósammála ágreiningnum mun hún einnig leggja fram gögn til að andmæla kröfunni. Við munum skoða þeirra gögn og taka ákvörðun um hvort halda eigi áfram með kröfuna. Við gerum þetta innan 10 daga.

Mögulegar niðurstöður annarrar matsskoðunar:

  • Hafna ágreiningsmálinu - málinu þínu verður lokað og þú færð ekki endurgreitt.
  • Senda kröfuna aftur til verslunar - málið þitt helst opið og endanlegt mat verður framkvæmt.

Skref 4: Endanlegt mat

Ef krafan er send til verslunarinnar aftur til endanlegrar skoðunar, fær hún viðbótartíma til að endurskoða málið og veita lokaafstöðu innan 30 daga.

Mögulegar niðurstöður annarrar matsskoðunar:

  • Verslunin samþykkir - ágreiningurinn þinn tekst og þú færð endurgreitt.
  • Verslunin er ósammála - kröfun þín verður endurmetin og gæti verði lokað. Í þessu tilfelli færðu ekki endurgreitt.
  • Málið stendur eftir óleyst - málið er sent áfram til Mastercard í skoðun, sem gefur út endanlega niðurstöðu innan 45 daga til viðbótar.

Lestu meira

Hvernig get ég gert ágreining vegna kortafærslu?